150. löggjafarþing — 129. fundur,  29. júní 2020.

félög til almannaheilla.

181. mál
[11:25]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg):

Herra forseti. Ég styð þessa málsmeðferð en var með fyrirvara á málinu vegna þess að mér þykir hafa gengið seint að klára það. Við meðferð nefndarinnar hafa komið fram málefnalegar ástæður fyrir því að það þurfi að skoða eilítið betur. Ég treysti því að það verði gert nú í sumar þannig að við getum klárað málið strax í haust.