150. löggjafarþing — 130. fundur,  30. júní 2020.

almannatryggingar.

135. mál
[00:52]
Horfa

Ásmundur Friðriksson (S):

Virðulegur forseti. Það er búin að vera góð umræða hér í kvöld. Ég legg fram frávísunartillögu vegna frumvarps til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, fjárhæð bóta. Mikilvægt er að málið fái frekari skoðun og áhrif þess á afkomu ríkissjóðs og á afkomu þeirra hópa sem falla undir lög um almannatryggingar, nr. 100/2007, verði metin til fulls.

Við umfjöllun velferðarnefndar um málið kom fram að ekki væri sjálfgefið að tenging fjárhæðar bóta við launavísitölu leiddi alltaf til hækkunar bóta umfram þróun fjárhæða samkvæmt gildandi lögum. Er því lagt til að skipaður verði starfshópur sem fái það verkefni að kortleggja áhrif frumvarpsins, meta áhrif þess á afkomu ríkissjóðs og skoða hvaða leiðir séu færar til að ná fram þeim markmiðum sem að er stefnt í frumvarpinu.

Í ljósi umfangs málsins og þeirra sjónarmiða sem hafa verið rakin er lagt til að málinu verði vísað til félags- og barnamálaráðherra sem skipi starfshóp sem verði falið að meta hvernig auka megi á skýrleika og fyrirsjáanleika í þróun fjárhæða samkvæmt 69. gr. laga um almannatryggingar.