151. löggjafarþing — 10. fundur,  19. okt. 2020.

samningur Sameinuðu þjóðanna.

[15:31]
Horfa

Ágúst Ólafur Ágústsson (Sf):

Herra forseti. Á lista ríkisstjórnarinnar yfir mál sem hún ætlar að leggja fram í vetur má finna stórfrétt, en reyndar er fréttin fólgin í því hvað er ekki á lista ríkisstjórnarinnar. Fyrir 16 mánuðum samþykkti Alþingi þingmál sem ég lagði fram ásamt 15 öðrum þingmönnum, um að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Ólíkt flestum þingmannamálum var þetta mál samþykkt og var ríkisstjórninni falið að undirbúa lögfestinguna. Til viðbótar átti ríkisstjórnin að leggja fram frumvarp á Alþingi sem fæli í sér lögfestingu samningsins og aðlögun íslenskra laga að honum eigi síðar en 13. desember 2020. Það er eftir einungis tvo mánuði. Hins vegar er ekkert slíkt frumvarp á málaskrá ríkisstjórnarinnar. Af hverju ekki, hæstv. forsætisráðherra? Vilji þingsins liggur alveg ljós fyrir og ráðherrar eiga að framfylgja vilja þingsins. Þeir eru framkvæmdarvald. Ráðherrar geta ekki valið og hafnað þingsályktunum eftir hentugleika.

Herra forseti. Hvernig stendur á því að þetta mál af öllum, mál sem myndi þýða gríðarlega mikla réttarbót fyrir fatlað fólk á Íslandi, sé látið mæta afgangi? Ég trúði satt best að segja ekki mínum eigin augum þegar ég las málaskrá ríkisstjórnarinnar. Með lögfestingunni yrði Ísland eitt fyrsta landið í heimi til að lögfesta þennan alþjóðasamning. Það er ekki oft sem við getum sagt það í þessum sal.

Herra forseti. Alþingi hefur ákveðið að taka þetta skref. En af hverju ekki ríkisstjórnin? Hvar er frumvarpið, hæstv. forsætisráðherra? Eru þetta ekki einfaldlega mistök sem hæstv. forsætisráðherra mun leiðrétta hér og nú?