151. löggjafarþing — 27. fundur, 27. nóv. 2020.
Frestun á skriflegum svörum.
Borist hefur bréf frá umhverfis- og auðlindaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 290, um urðunarstaði búfjár sem fargað er vegna sjúkdóma, frá Höllu Signýju Kristjánsdóttur, og frá utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra við fyrirspurn á þskj. 265, um viðbrögð við aðgerðum bandarískra stjórnvalda gegn meðafla sjávarspendýra, frá Ingu Sæland.