151. löggjafarþing — 36. fundur, 11. des. 2020.
fjárlög 2021.
1. mál
Virðulegi forseti. Ég segi já við þessari tillögu og ég vona svo heitt og innilega að nú setjum við hjúkrunarheimilin í forgang. Við höfum lært í Covid-faraldrinum hversu mikilvægt er að hafa hjúkrunarheimilin í góðu standi og sjá til þess að þar séu ekki biðlistar og að séð verði til þess að þeir sem þurfa á þessari þjónustu að halda fái hana.