151. löggjafarþing — 38. fundur, 15. des. 2020.
skattar og gjöld.
314. mál
Herra forseti. Þrátt fyrir að maður hafi nú mikla samúð með stöðu fyrirtækja í þessu ástandi þá má sú samúð ekki vera á kostnað umhverfisins. Við getum ekki stutt þessa tillögu um að bæta við afslætti á slík gjöld að svo stöddu. Við hljótum að hafa aðrar og betri leiðir til að styðja þessi fyrirtæki.