151. löggjafarþing — 45. fundur,  19. jan. 2021.

reglubundin og viðvarandi upplýsingaskylda útgefenda verðbréfa og flöggunarskylda.

341. mál
[17:38]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni. Það skiptir máli að við séum ekki að setja séríslenskar, mjög íþyngjandi reglur umfram það sem við höfum skuldbundið okkur til að gera nema fyrir því séu afskaplega sterk rök. Allt sem hv. þingmaður hefur sagt hér um mikilvægi erlendrar fjárfestingar, svo dæmi sé tekið, get ég sömuleiðis tekið undir. Nefndin fær með þessu tilefni til að ígrunda þetta frekar og fær umsagnir í samráðsgáttinni eins og í nesti fyrir vinnu sína.