151. löggjafarþing — 50. fundur,  28. jan. 2021.

staða stóriðjunnar.

[11:17]
Horfa

Guðjón S. Brjánsson (Sf):

Herra forseti. Stóriðjan hefur á margan hátt verið eins og heit kartafla undanfarin ár, m.a. í opinberri umræðu og sérstaklega hefur verið togast á um orkuverð. Í því efni er engin spurning að landsmenn þurfa og eiga að krefjast eðlilegs verðs fyrir selda raforku. Þjóðarbúið þarf á því að halda. Stóriðjan hefur haft gríðarlega mikil áhrif á íslenskum vinnumarkaði og þannig stuðlað að festu og atvinnuöryggi hjá þúsundum einstaklinga, og víða haft úrslitaáhrif.

Á öflugu athafnasvæði á Grundartanga eru afar mikilvæg fyrirtæki, bæði í þjóðhagslegu tilliti og fyrir atvinnulíf á suðurhluta Vesturlands. Áhyggjur eru hins vegar uppi um að starfsemi þessara fyrirtækja sé ekki tryggð til framtíðar vegna minnkandi samkeppnishæfni orkusækins iðnaðar. Á vegum Þróunarfélags Grundartanga er nú unnið hörðum höndum að ýmsum verkefnum í græna átt. Dæmi um það er nýting á glatvarma til uppsetningar á hitaveitu eða jafnvel í raforkuframleiðslu. Þarna geta því leynst ýmis mikilvæg svör við loftslagsvanda Íslands. Þetta gæti skapað fjölmörg störf með lítið umhverfisspor eða hitað upp allt að 15.000 hús. Með föngun kolefnis úr útblæstri verksmiðjanna og með framleiðslu á kolefnishlutlausu eldsneyti væri mögulegt að minnka kolefnisspor Íslands um 12% eða u.þ.b. 450.000 tonn af koltvísýringi. Fróðlegt væri að heyra viðhorf hæstv. ráðherra um stuðning við þau áform sem uppi eru að þessu leyti.

Herra forseti. Óhreinu börnin hennar Evu og stóriðjan eru oft nefnd í sömu andránni, að stóriðjan sé tímaskekkja og þurfi að víkja hið fyrsta. Gleymum því ekki að þessari mikilvægu starfsemi var komið á fót hér á sínum tíma með vilja stjórnvalda og jafnvel fyrir áeggjan þeirra. Ábyrgð stjórnvalda er því mikil og stjórnvöld verða að haga orðræðu sinni og athöfnum með það í huga. (Forseti hringir.) Við eigum hins vegar að vera einörð í kröfunni um loftslags- og umhverfisþættina og þau markmið sem við höfum sett okkur, m.a. við í Samfylkingunni með útgáfu ritsins Ábyrga leiðin. Mörg tækifæri eru enn ósótt.