151. löggjafarþing — 57. fundur,  18. feb. 2021.

breyting á menntastefnu með tilliti til drengja.

[13:32]
Horfa

Þorsteinn Sæmundsson (M):

Herra forseti. Ég hlustaði með athygli í gærkvöldi á viðtal við hæstv. menntamálaráðherra í sjónvarpi þar sem fram kom, eins og áður hefur komið fram hér, vandi drengja í menntakerfinu og sú staðreynd að menntakerfið hentar ekki drengjum og líka sú staðreynd að rúmlega 30% drengja lesa sér ekki til gagns eftir grunnskólaútskrift. Það var á ráðherra að heyra að menntastefnan sem hún hefur lagt fram væri lykillinn að því að bæta þetta ástand. En í menntastefnunni er ekki minnst á að menntakerfið henti ekki drengjum. Það er ekki minnst á sérstakan vanda varðandi læsi drengja. Ég vil því spyrja hæstv. ráðherra hvort hún hyggist breyta stefnunni í meðförum þingsins þannig að þessi atriði komist á dagskrá þar.

Þeir sem hafa skilað inn umsögnum til hv. allsherjar- og menntamálanefndar, þar sem ég á sæti, og gestir sem komið hafa á fund nefndarinnar hafa einmitt vakið máls á þessu sama vandamáli. Því hlýt ég að spyrja hvort það sé svo, ef lykillinn er í menntastefnunni, eins og ráðherra lét í skína í gærkvöldi, að hún ætli þá að breyta stefnunni þannig að það komi fram tillaga að breytingu í þessa átt. Eða var svar hennar í gærkvöldi einvörðungu til þess fallið að slá ryki í augun á þeim sem spurði? Spyrjandinn var náttúrlega einn þarna og það var enginn þarna til andsvara, ef maður getur orðað það svo, þannig að umfjöllunin var nokkuð einhliða. Þess vegna held ég að það sé mjög brýnt að svar við þessu komi fram.