151. löggjafarþing — 58. fundur,  23. feb. 2021.

innheimtulög.

162. mál
[15:57]
Horfa

Flm. (Ólafur Ísleifsson) (M):

Herra forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á innheimtulögum, nr. 95/2008. Þetta er mál sem í eðli sínu snýr að aukinni neytendavernd á fjármálamarkaði eins og ég mun hér nánar rekja. Flutningsmenn auk mín eru hv. þingmenn Anna Kolbrún Árnadóttir, Bergþór Ólason, Birgir Þórarinsson, Gunnar Bragi Sveinsson, Karl Gauti Hjaltason, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Sigurður Páll Jónsson og Þorsteinn Sæmundsson.

Þetta frumvarp er núna lagt fram í þriðja sinn. Það var áður lagt fram á 149. löggjafarþingi og 150. löggjafarþingi en náði ekki fram að ganga og er nú endurflutt lítillega breytt. Frumvarpið á rætur að rekja til álits umboðsmanns Alþingis í máli nr. 8302/2014 og stofnaðist vegna kvörtunar Hagsmunasamtaka heimilanna yfir skorti á eftirliti með innheimtustarfsemi. Við meðferð málsins kom í ljós að nokkur fyrirtæki sem stunduðu innheimtustarfsemi störfuðu án eftirlits þar sem óljóst var hvort þau féllu undir eftirlit Fjármálaeftirlitsins eða Lögmannafélags Íslands, með þeirri afleiðingu að hvorugt þeirra hafði í raun eftirlit með þeim. Hér reyndist því vera alvarleg glufa í eftirliti með innheimtustarfsemi.

Til að rekja söguna var það með lögum nr. 55/2018 að gerðar voru breytingar á innheimtulögum sem ætlað var að bregðast við þessum niðurstöðum umboðsmanns Alþingis í fyrrnefndu máli. Þær reyndust ganga í raun í öfuga átt og síðan hafa komið fram ábendingar um að breytingarnar hafi ekki reynst eins vel og ætlast var til. Svo virðist sem enn starfi innheimtufyrirtæki án eftirlits eða óljóst sé hvernig eftirliti er háttað og breytingin frá 2018 hafi því ekki tekið af öll tvímæli um það. Við samningu frumvarps þessa hefur verið tekið mið af slíkum ábendingum.

Innheimtulög skipta innheimtuaðilum í tvo hópa, annars vegar eru þeir sem eru að meginreglu leyfisskyldir og falla undir eftirlit Fjármálaeftirlitsins og hins vegar eru tilteknir aðilar sem eru undanþegnir leyfisskyldu. Undantekningarákvæðið á m.a. við um opinbera aðila, fjármálafyrirtæki, lögmenn og lögmannsstofur. Þetta fyrirkomulag er í sjálfu sér ekki óeðlilegt í ljósi þess að fjármálafyrirtæki eru, svo að dæmi sé tekið, þegar undir eftirliti Fjármálaeftirlitsins, en Lögmannafélag Íslands fer með eftirlit með störfum lögmanna. Ætla má að sérstaða lögmanna samkvæmt innheimtulögum stafi af því að innheimta á kröfum skjólstæðinga er oft liður í lögmannsstörfum sem má skilgreina sem aukastarf með aðalstarfseminni, þ.e. lögmannsþjónustu. Sambærilega undanþágu og hér er getið um er að finna í lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, þegar um tilfallandi þjónustu er að ræða og hún veitt sem eðlilegur þáttur í víðtækara viðfangsefni á starfssviðinu. Eftir sem áður hefur verið bent á að það sé óeðlilegt og geti skapað óvissu og glufur í eftirliti ef fyrirtæki sem hafa innheimtu að meginstarfsemi sinni geta sniðgengið starfsleyfisskyldu með því einu að skráðir eigendur þeirra séu lögmenn. Jafnframt er það til þess fallið að raska samkeppnisstöðu innheimtuaðila með starfsleyfi sem uppfylla öll skilyrði þess að önnur fyrirtæki á sama markaði geti komið sér hjá leyfisskyldu.

Með frumvarpi þessu er því lagt til að skýrari aðgreining verði gerð á milli fyrirtækja með lögmannsþjónustu sem aðalstarfsemi og fyrirtækja sem hafa innheimtu fyrir aðra sem aðalstarfsemi og tekin verði af öll tvímæli um starfsleyfisskyldu hinna síðarnefndu án tillits til eignarhalds. Með hliðsjón af ábendingum í umsögnum Hagsmunasamtaka heimilanna er einnig lagt til í frumvarpinu að skerpt verði á upplýsingaskyldu innheimtuaðila um réttarúrræði neytenda og áréttað að eftirlit með viðskiptaháttum innheimtuaðila fari að öðru leyti eftir lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu.

Herra forseti. Eins og ég gat um í upphafi snýr þetta mál að aukinni neytendavernd á fjármálamarkaði með því að fylla í glufur með eftirliti með innheimtufyrirtækjum og með því að árétta að skerpt verði á upplýsingaskyldu innheimtuaðila um réttarúrræði neytenda. Ég lýsi von um að frumvarpið fái góðan framgang hér á hinu háa Alþingi.