151. löggjafarþing — 62. fundur, 3. mars 2021.
ferðakostnaður vegna tannréttinga.
521. mál
Herra forseti. Takk fyrir þetta. Ég er nú enginn hæstiréttur í þessum málum en mér finnst bara rétt hér í þinghúsinu, í ræðustól, að láta alla hér í húsinu og aðra sem á mig horfa vita að merki er um gosóróa sunnan við Keili. Vísindamenn eru nokkuð á því að þar kunni eldgos að vera í uppsiglingu og alls konar viðbúnaður hafinn svo það er um að gera að fylgjast vandlega með fréttum.
Takk fyrir, herra forseti.