151. löggjafarþing — 66. fundur,  12. mars 2021.

ákvæði um trúnað í nefndum.

[11:20]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti vekur athygli á því að sá hv. þingmaður sem hér er vísað til í umræðum um störf þingsins nýtti sér rétt sinn til að lýsa sínum sjónarmiðum í umræðum undir dagskrárliðnum störf þingsins. Hv. þingmaður stendur ábyrgur fyrir þeim. Forseti biður bara hv. þingmann að hafa þetta í huga, að hér er umræðum haldið uppi um sjónarmið sem einn tiltekinn þingmaður lýsti í umræðum um störf þingsins.