151. löggjafarþing — 66. fundur,  12. mars 2021.

barnalög.

11. mál
[13:05]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Von mín og vænting í meðferð þessa máls í nefndinni var auðvitað allan tímann sú að við næðum til þessa hóps. Ég ætla enn þá að leyfa mér að bera þá von að það geti orðið niðurstaðan. Í því ljósi ætla ég að leggja til að tillagan fái að fara aftur inn til nefndar til frekari meðferðar þar og láta á það reyna hvort nefndin geti ekki sameinast um hana í áframhaldandi vinnslu málsins. Í því ljósi dreg ég tillöguna til baka.