151. löggjafarþing — 68. fundur,  17. mars 2021.

störf þingsins.

[13:26]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Í gær flutti hæstv. dómsmálaráðherra hér á Alþingi frumvarp um nýja þýðingu á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, sem er gott. En hvar er lögfesting á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og viðauka hans? Hvers vegna er ekki búið að lögfesta hann eins og átti að vera búið að gera fyrir áramót? Í samningnum og viðauka hans er verið að tryggja eftirlitsskyldu með því að staðið sé við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Ríkisstjórnin á nefnilega að vera búin að leggja fram frumvarp og lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um málefni fatlaðs fólks. Hvers vegna dregur ríkisstjórn Vinstri grænna, Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks lappirnar í þessu máli? Hvað er í gangi hjá ríkisstjórninni? Lögfestingin var samþykkt hér af öllum, úr öllum flokkum, sem er risaskref fyrir fatlað fólk.

Ég skil ekki hvers vegna ríkisstjórnin hysjar ekki upp um sig réttlætið og finnur samviskuna með því að bæta úr þessu og stórbæta réttindastöðu fatlaðs fólks á Íslandi eins og henni ber. Andlegt og líkamlegt ofbeldi hefur verið hlutskipti fatlaðs fólks í aldanna rás og er því miður enn. Þá er óþolandi hið fjárhagslega ofbeldi sem viðgengst hefur ár eftir ár, ríkisstjórn eftir ríkisstjórn, gagnvart fötluðu fólki. Í því samhengi geri ég einnig þá kröfu að hætt verði ómannúðlegri skerðingu á skerðingu ofan á kjör fatlaðs fólks, sem veldur því að stór hópur þess á ekki lengur mat á diskinn sinn nema í mesta lagi fyrsta dag mánaðar. Það er kominn tími til hér á Alþingi að ríkisstjórnin sýni fötluðu fólki virðingu og lögfesti samning Sameinuðu þjóðanna og viðauka hans og það strax. Sýnum samstöðu á Alþingi og stöðvum það að fatlað fólk sé einhvers konar afgangsstærð sem fái bara mola af borði ríkisins, ef einhverjir eru. Sjáum til þess í eitt skipti fyrir öll að lögleg réttindi þeirra til mannsæmandi lífs séu virt. Flokkur fólksins segir: Fatlað fólk fyrst, svo allt hitt.