151. löggjafarþing — 75. fundur,  26. mars 2021.

hertar sóttvarnareglur, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[11:14]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Herra forseti. Upplýsingaóreiðan heldur áfram í þessum málaflokki. Bara í gær bárust fréttir af því að von væri á miklu minni skammti af Janssen-bóluefni en gert hafði verið ráð fyrir, bara broti af því sem búist var við. Svo koma einhverjar aðrar fréttir í dag. En það sem skiptir máli er það sem skilar sér og að Ísland hafi aðstöðu til að tryggja sér það bóluefni sem þarf og til að nýta sérstöðu sína í þeim efnum. Ég hef heyrt ráðherra lýsa áhuga á Spútnik-bóluefninu áður, en hvað er raunverulega að gerast í þeim málum? Hæstv. ráðherra segir að viðræður séu á byrjunarstigi en fyrri yfirlýsingar, m.a. hæstv. forsætisráðherra, benda ekki til annars en að menn séu bara að bíða eftir því að heyra frá Evrópusambandinu um hvenær Spútnik komi hugsanlega inn í Evrópupakkann. Er verið að reyna að semja um kaup á þessu Spútnik-efni eða öðru efni fyrir alla þjóðina utan við Evrópusambandsklúðrið?