151. löggjafarþing — 78. fundur,  14. apr. 2021.

loftslagsmál.

535. mál
[17:59]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Kolbeinn Óttarsson Proppé) (Vg):

Forseti. Ég mæli hér fyrir býsna einföldu máli sem því miður þarf að mæla fyrir, því að reyndin er sú að þegar ný breytingalög voru sett árið 2020 var sett nýtt reglugerðarákvæði en láðist að vísa til 1. mgr. samhliða 2. mgr., sem þó var samviskusamlega vísað til. Með öðrum orðum var ónæg tilvísun í lögunum sem samþykkt voru í fyrra og ófullnægjandi reglugerðarheimild í 2. mgr. 6. gr. b og 6. mgr. 8 gr. Þá er hér leiðrétt tilvísun í kafla í 3. mgr. 38. gr. Í öllum innleiðingarferlunum og samskiptunum á milli framsögumanns nefndarinnar og ráðuneytis og þess sem verið var að vinna með þar urðu einfaldlega þessi leiðu mistök þannig að hér er verið að laga þau.

Jafnframt er lagt til að tvær gerðir Evrópusambandsins verði innleiddar og þeim bætt við 47. gr. laganna. Um er að ræða tilskipun (ESB) 2018/410 og framselda ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1071. Loks er lögð til breyting á II. viðauka við lögin í samræmi við áðurnefnda framselda ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1071.

Meiri hlutinn telur að þegar leiðrétta þarf meinbugi eða aðra annmarka á lögum þurfi að bregðast við skjótt svo að löggjöf verði eins vönduð og kostur er og hefur því lagt fram nefndarálit með breytingartillögu þar sem fram fer smávægileg lagfæring sem ekki er ætlað að hafa efnisleg áhrif, vonandi þannig að við þurfum ekki að standa hér aftur og leiðrétta það. Sú leiðrétting á lögum um loftslagsmál sem ég mæli hér fyrir er að í stað dagsetningarinnar 24. júní í 5. gr. komi: 14. júlí.

Hv. þingmenn Hanna Katrín Friðriksson og Jón Gunnarsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins en Hanna Katrín Friðriksson skrifar undir álitið með heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis.

Hv. þm. Sara Elísa Þórðardóttir, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykk álitinu.

Undir það skrifa auk mín, sem er framsögumaður, hv. þingmenn Ari Trausti Guðmundsson, Guðjón S. Brjánsson, Hanna Katrín Friðriksson, Líneik Anna Sævarsdóttir og Vilhjálmur Árnason.