151. löggjafarþing — 79. fundur,  15. apr. 2021.

breyting á ýmsum lögum um skatta og gjöld .

342. mál
[14:27]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Með samþykkt þessa frumvarps er stigið lítið en mikilvægt skref til stuðnings við almannaheillafélög. Frumvarpið tekur til að mynda utan um starfsemi eins og æskulýðsstarfsemi, björgunarsveitirnar okkar, náttúruverndarsamtök o.fl. Það er mjög gleðilegt að við skulum stíga þessi skref núna. Næsta skref í sömu átt hlýtur að vera að klára það almannaheillafrumvarp sem er þegar inni í þinginu og ég hlakka til að halda áfram að fást við það mál og klára það hér áður en þingi lýkur.