151. löggjafarþing — 86. fundur,  27. apr. 2021.

Frestun á skriflegum svörum.

[13:01]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hafa bréf frá eftirfarandi ráðherrum þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurnum: Frá félags- og barnamálaráðherra vegna fyrirspurnar á þingskjali 1124, um ráðgjafaþjónustu, verktöku og tímabundin verkefni, frá Gunnari Braga Sveinssyni, og á þingskjali 1145, um lagalega ráðgjöf; frá Birni Leví Gunnarssyni; frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra vegna fyrirspurnar á þingskjali 1131, um ráðgjafaþjónustu, verktöku og tímabundin verkefni, frá Gunnari Braga Sveinssyni; og loks frá utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra vegna fyrirspurnar á þingskjali 979, um skráningu samskipta í ráðuneytinu, frá Birni Leví Gunnarssyni.