151. löggjafarþing — 91. fundur,  6. maí 2021.

málefni innflytjenda.

452. mál
[13:42]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Já, það er í sjálfu sér allt í lagi að kalla málið inn til nefndar. Það er engu að síður kostnaðarmat í frumvarpinu, kemur fram þar, og við fengum upplýsingar um það í nefndinni hvað þetta kostaði, hvaða fjárhæð væri verið að tala um sem þyrfti að leggja til Fjölmenningarseturs vegna þessa máls þannig að það liggur fyrir. Bara svo því sé haldið til haga að hv. velferðarnefnd fékk þær upplýsingar.