151. löggjafarþing — 100. fundur, 25. maí 2021.
fjölmiðlar.
367. mál
Virðulegi forseti. Hér er um að ræða tímabundna ráðstöfun sem rennur sitt skeið í lok næsta árs. Ég treysti því að fyrir þann tíma beri annað tveggja sú ríkisstjórn sem nú situr eða sú sem tekur við í haust gæfu til þess að leiðrétta þau augljósu rangindi sem er að finna á íslenskum fjölmiðlamarkaði núna. Í trausti þess styð ég þetta frumvarp.
Ég segi já.