151. löggjafarþing — 107. fundur,  4. júní 2021.

um fundarstjórn.

[13:04]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti tekur undir það að samráðsskylda stjórnvalda við utanríkismálanefnd er mjög mikilvæg. Það vill nú svo skemmtilega til að næsta mál á dagskrá, reyndar fyrsta mál á dagskrá, er staðfesting, væntanlega, á breytingum á þingsköpum þar sem skerpt er á þeirri samráðsskyldu, svo það sé upplýst inn í þá umræðu sem hér er hafin.