151. löggjafarþing — 109. fundur,  8. júní 2021.

skýrsla um leghálsskimanir.

[13:55]
Horfa

Ágúst Ólafur Ágústsson (Sf):

Herra forseti. Fyrst forseti er hér að safna í sarpinn þá ætla ég líka að óska liðsinnis forseta sem lýtur að því að hér sé virtur vilji þingsins þegar kemur að því að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Ég hef áður leitað liðsinnis forseta hvað þetta varðar. Hér liggur fyrir samþykkt þingsályktun þingheims um að ráðherra beri að leggja fram frumvarp þess efnis. Ég vísa í lögfræðiálit frá Alþingi þar sem segir að þingsályktun sé bindandi fyrir ríkisstjórn. Hvernig stendur á því að það heyrist ekkert hvað þetta varðar? Eru þingsályktanir sem við samþykkjum hér bara til skrauts? Ég nefndi síðast að ráðherrarnir eru framkvæmdarvald, löggjafarvaldið er hérna megin og við erum búin að samþykkja þetta. Af hverju get ég ekki fengið liðsinni forseta til að ítreka gagnvart hæstv. forsætisráðherra að koma með frumvarp? (Gripið fram í.) — Dómsmálaráðherra, allt í lagi. Mér er nokk sama hvort það er forsætisráðherra eða dómsmálaráðherra, dómsmálaráðherra er hluti af þinni ríkisstjórn, hæstv. ráðherra.

Við í þessum sal erum búin að segja að frumvarpið átti að koma fyrir hálfu ári. (Forseti hringir.) Hæstv. forsætisráðherra samþykkti það jafnvel sjálf. Hvernig stendur á því að ég þarf að koma hér ítrekað og kalla eftir þessu frumvarpi? (Forseti hringir.) Þetta er stórmál. Þetta er mál sem lýtur að réttindum fatlaðs fólks. Hvernig stendur á því, á lokadögum þingsins, að ekkert bólar á þessu máli af öllum hugsanlegum málum? Kæri forseti. Beittu þér fyrir þessu í þágu þingsins.