stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.
Nú flytur stefnuræðu sína hæstv. forsætisráðherra fyrir hönd ríkisstjórnarinnar og fram munu fara umræður um hana sem verður útvarpað og sjónvarpað héðan úr Alþingishúsinu. Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir. Forsætisráðherra hefur 12 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkur forsætisráðherra hafa sex mínútur í fyrstu umferð, fimm mínútur í annarri og í þriðju umferð hafa þingflokkarnir fjórar mínútur hver.
Röð flokkanna er í öllum umferðum þessi: Vinstrihreyfingin – grænt framboð, Samfylkingin, Flokkur fólksins, Sjálfstæðisflokkur, Píratar, Framsóknarflokkur, Viðreisn og Miðflokkurinn.
Ræðumenn fyrir Vinstrihreyfinguna – grænt framboð verða Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, í fyrstu umferð, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra, í annarri umferð, og Svandís Svavarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, í þriðju umferð.
Fyrir Samfylkinguna tala Logi Einarsson, 5. þm. Norðaust., í fyrstu umferð, Kristrún Frostadóttir, 3. þm. Reykv. s., í annarri umferð, og Oddný Harðardóttir, 8. þm. Suðurk., í þriðju umferð.
Fyrir Flokk fólksins tala Inga Sæland, 7. þm. Reykv. s., í fyrstu umferð, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, 3. þm. Suðurk., í annarri umferð, og Guðmundur Ingi Kristinsson, 9. þm. Suðvest., í þriðju umferð.
Fyrir Sjálfstæðisflokk tala Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, í fyrstu umferð, í annarri umferð Guðrún Hafsteinsdóttir, 1. þm. Suðurk., og í þriðju umferð Njáll Trausti Friðbertsson, 2. þm. Norðaust.
Ræðumenn Pírata verða í fyrstu umferð Björn Leví Gunnarsson, 6. þm. Reykv. s., Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, 11. þm. Reykv. s., í annarri, og í þriðju umferð Andrés Ingi Jónsson, 10. þm. Reykv. n.
Fyrir Framsóknarflokk tala í fyrstu umferð Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, í annarri Lilja Alfreðsdóttir, ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðherra, og í þriðju umferð Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra.
Ræðumenn Viðreisnar verða í fyrstu umferð Þorgerður K. Gunnarsdóttir, 5. þm. Suðvest., Guðbrandur Einarsson, 10. þm. Suðurk., í annarri, og Sigmar Guðmundsson, 12. þm. Suðvest., í þriðju umferð.
Ræðumenn fyrir Miðflokkinn verða Bergþór Ólason, 8. þm. Norðvest., í fyrstu og þriðju umferð, og í annarri umferð Anna Kolbrún Árnadóttir, 7. þm. Norðaust.