152. löggjafarþing — 17. fundur,  27. des. 2021.

samningur milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu árið 2022.

166. mál
[16:14]
Horfa

Frsm. utanrmn. (Birgir Þórarinsson) (S):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu samnings milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu árið 2022. Nefndin hefur fjallað um málið. Hér er sem sagt um að ræða fiskveiðisamning milli Íslands og Færeyja fyrir komandi ár. Þessi samningur byggir á sögulegri hefð. Hann er mikilvægur fyrir íslenskan sjávarútveg og hefur verið gerður árlega í áratugi og byggir á gömlum merg. Hér er um sams konar samning að ræða og í fyrra og sömu efnisatriði og síðast. Það er mikilvægt að geta byrjað nýtt ár með samninginn í gildi og þær tölur sem hér eru mjög svipaðar og síðast.

Með þessari tillögu er leitað heimildar Alþingis til staðfestingar á samningi milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu árið 2022, sem gengið var frá með bréfaskiptum í Reykjavík og Þórshöfn 8. og 9. desember 2021. Samningurinn kveður á um heimildir aðila til veiða á uppsjávarfiski í lögsögu hvors annars á árinu 2022. Í honum er gert ráð fyrir gagnkvæmri heimild skipa hvors aðila til veiða á kolmunna og norsk-íslenskri síld innan lögsögu hins á árinu 2022. Íslenskum skipum eru heimilar veiðar á allt að 1.300 lestum af makríl innan færeyskrar lögsögu á árinu 2022 og efni samningsins er samhljóða þeim samningi sem gilti fyrir árin 2021, eins og áður segir.

Samningurinn öðlast endanlegt gildi þegar tilkynnt hefur verið um að stjórnskipulegum skilyrðum hvors lands um sig hafi verið fullnægt.

Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.

Þorgerður K. Gunnarsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins en skrifar undir álit þetta í samræmi við 2. mgr. 29. gr. þingskapalaga. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins. Gísli Rafn Ólafsson er áheyrnarfulltrúi í nefndinni og styður álitið.

Undir álitið skrifa hv. þingmenn hv. utanríkismálanefndar: Bjarni Jónsson, formaður, Birgir Þórarinsson, framsögumaður, Njáll Trausti Friðbertsson, Diljá Mist Einarsdóttir, Logi Einarsson, Jakob Frímann Magnússon, Jóhann Friðrik Friðriksson og Þorgerður K. Gunnarsdóttir.