152. löggjafarþing — 17. fundur,  27. des. 2021.

loftferðir.

154. mál
[16:49]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Halla Signý Kristjánsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og tek aftur undir þau orð að það er gott að fara vel yfir málið. Eins og ég segi veit ég ekki hvernig vinnan fór fram á fyrri stigum en sjálfsagt voru engin mótmæli við því í nefndinni þegar þangað var komið að við yrðum að vinna með þetta og finna þá lausn sem best væri, enda finnst mér að niðurstaðan af þessum breytingum hafi orðið þannig að öllum líki því að allir skrifuðu undir nefndarálitið.