152. löggjafarþing — 25. fundur,  20. jan. 2022.

viðvera ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum.

[10:54]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Ég ákvað nú að hlýða kalli hv. þm. Andrésar Inga Jónssonar og leggjast á sveif með ráðherra. Við erum búin að taka upp breytt vinnulag í þessari Covid-viðureign og við erum farin að funda á fjarfundum og ef það er eina leiðin til að við getum átt orðastað við ráðherra væri ég alveg opinn fyrir þeirri hugmynd að við myndum setja skjá fyrir ofan kollinn á hæstv. forseta og við gætum þá átt orðastað við ráðherrana, hvort sem er úr skíðabrekkum eða af ströndinni.