152. löggjafarþing — 25. fundur,  20. jan. 2022.

ávana- og fíkniefni.

24. mál
[17:50]
Horfa

Tómas A. Tómasson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hv. þingmenn. Mín lokaorð eru þessi: Ég sagði áðan að ég þekkti engan og hefði aldrei orðið var við það að nokkur maður reykti ekki gras af því að það væri ólöglegt. En það er fullt af fólki sem neytir ekki kókaíns af því að það er ólöglegt. Um leið og það hættir að vera ólöglegt þá er svo miklu auðveldara og aðgengilegra að byrja að prufa. Ég segi ekki að allir ánetjist því, engan veginn. En stór hópur af fólki mun ánetjast því alveg óumdeilanlega eftir því sem fleiri prufa.