152. löggjafarþing — 32. fundur,  2. feb. 2022.

um fundarstjórn.

[15:55]
Horfa

Birgir Þórarinsson (S):

Frú forseti. Það er rétt að það komi fram að Alþingi ber engin skylda til að veita ríkisborgararétt. Þetta er heimildarákvæði. Það eru heldur ekki neinir tímafrestir. Við getum þess vegna ákveðið að veita hann einu sinni á ári eða einu sinni í mánuði.

En ég kem hér upp, frú forseti, til að geta þess að undirnefnd fundaði í dag og mun væntanlega funda á morgun. Ég vonast til þess að þetta mál sé að leysast og við getum farið að hefja þessa vinnu þannig að sómi verði að.