Bráðabirgðaútgáfa.

152. löggjafarþing — 37. fundur,  10. feb. 2022.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

332. mál
[14:32]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir andsvarið. Ég hef fulla trú á því að við leysum þetta í nefndinni. Stærri mál hafa komið inn og náð farsælli lausn. En það er náttúrlega ekkert óeðlilegt og ekkert óalgengt að eitthvað beri á milli og við náum þá út málinu í samþykkt meiri hluta, það þarf meiri hluta, og ég vona að það gerist í þessu máli.