Bráðabirgðaútgáfa.

152. löggjafarþing — 38. fundur,  21. feb. 2022.

mannaskipti i nefndum.

[15:04]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Forseta hefur borist erindi frá þingflokki Framsóknarflokksins um mannaskipti í nefndum, sbr. 1. mgr. 16. gr. þingskapa, þannig að Þórarinn Ingi Pétursson taki sæti sem aðalmaður í fjárlaganefnd í stað Ingibjargar Isaksen en einnig að Ingibjörg Isaksen taki sæti sem aðalmaður í umhverfis- og samgöngunefnd í stað Líneikar Önnu Sævarsdóttur. Þessar mannabreytingar skoðast samþykktar án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.