152. löggjafarþing — 45. fundur,  2. mars 2022.

Frestun á skriflegum svörum.

[15:00]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Forseta hefur borist bréf frá umhverfis-, orku og loftslagsmálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 456, um aðkomu ungs fólks að ákvarðanatöku og stefnumótun, frá Evu Dögg Davíðsdóttur. Einnig hefur borist bréf frá menningar- og viðskiptaráðherra og matvælaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 485 og þskj. 484, sem eru báðar um samskipti við hagsmunaverði og skráningu þeirra, frá Ásthildi Lóu Þórsdóttur.