152. löggjafarþing — 46. fundur, 3. mars 2022.
Frestun á skriflegum svörum.
Forseta hafa borist bréf frá heilbrigðisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 457, um kostnað ríkisins vegna sýnatöku vegna heimsfaraldurs Covid-19, og á þskj. 467, um kostnað ríkisins vegna sóttvarnahótela, báðar frá Njáli Trausta Friðbertssyni, og fyrirspurn á þskj. 481, samskipti við hagsmunaverði og skráning þeirra, frá Ásthildi Lóu Þórsdóttur.