Varamenn taka þingsæti.
Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Pírata um að Þórhildur Sunna Ævarsdóttir verði fjarverandi á næstunni. Einnig hafa borist bréf frá Jóhanni Friðrik Friðrikssyni, Hildi Sverrisdóttur og Oddnýju G. Harðardóttur um að þau geti ekki sótt þingfundi á næstunni. Í dag taka því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Pírata í Suðvest., Eva Sjöfn Helgadóttir, 1. varamaður á lista Framsóknarflokksins í Suðurk., Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, 1. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykv. s., Friðjón R. Friðjónsson, og 1. varamaður á lista Samfylkingarinnar í Suðurk., Viktor Stefán Pálsson.
Eva Sjöfn Helgadóttir, Friðjón R. Friðjónsson og Viktor Stefán Pálsson hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru boðin velkomin til starfa að nýju.