152. löggjafarþing — 51. fundur,  14. mars 2022.

staðfesting kosningar.

[15:03]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Borist hefur bréf frá Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, 7. þm. Norðaust., um að hann geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Því er óskað eftir að í dag taki Ágústa Ágústsdóttir sæti á Alþingi, en hún er 3. varamaður á lista Miðflokksins í kjördæminu. 1. og 2. varamaður á lista í kjördæminu hafa boðað forföll. Að ósk forseta hefur landskjörstjórn gefið út tilkynningu á grundvelli 1. mgr. 113. gr. kosningalaga til Ágústu Ágústsdóttur. Jafnframt hefur stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fundað til þess að fjalla um kosningu og kjörgengi hennar.