152. löggjafarþing — 51. fundur,  14. mars 2022.

um fundarstjórn.

[16:29]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Ég vil koma hérna upp í því samhengi að forseti þingsins er forseti þingsins alls og sannarlega sjáum við það oft gerist hér í þingsal að forseti grípi í sín verkfæri og sýni sitt vald þegar þingmenn, jafnvel stjórnarþingmenn, hafa gengið of langt. Það gerðist ekki í þetta sinn einhverra hluta vegna. Heyrið þið hvernig liðið lætur? Orð hæstv. ráðherra. Heyrið þið hvernig liðið lætur? Hæstv. ráðherra er hér að tala til Alþingis. Heyrið þið hvernig liðið lætur? Þetta eru orðin. Þetta er virðingin. Engin viðbrögð frá stjórnarmeirihlutanum.