152. löggjafarþing — 51. fundur,  14. mars 2022.

réttindi sjúklinga.

150. mál
[19:31]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Já, ég endurtek bara það sem ég sagði áðan, ég held að góður hugur fylgi máli. Ég þekki hæstv. ráðherra ekki af öðru og ég ætla ekki að þykjast hafa forsendur til að fullyrða um hvað sé rétt hvenær, hvers vegna og annað slíkt. Til þess þarf einmitt að vanda svona frumvörp sérstaklega vel og kalla að borðinu alla sem hugsanlega eiga snertifleti við þær ákvarðanir sem teknar eru við þessar erfiðu aðstæður. Það hefur einfaldlega ekki verið gert. Það er bagalegt og það nægir til þess að ég sé ekki sannfærður um að málið hafi átt að koma fram á þessum tímapunkti.