152. löggjafarþing — 52. fundur,  15. mars 2022.

um fundarstjórn.

[13:47]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Forseti vill geta þess að þessi ákvörðun forseta var tekin að höfðu samráði við hæstv. ráðherra eftir samtöl þeirra um stöðu þessa máls. Forseti vill að öðru leyti ekki tjá sig um afstöðu hæstv. ráðherra sem kemur í hús á eftir. En þessi breyting ætti að mati forseta að verða til að greiða fyrir þingstörfum í dag, en um framhaldið munu væntanlega eiga sér stað frekari samtöl.