152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

listamannalaun.

408. mál
[15:52]
Horfa

Birgir Þórarinsson (S):

Frú forseti. Í þessu frumvarpi er verið að fjölga starfslaunum listamanna tímabundið fyrir árið 2022, úr 1.600 mánaðarlaunum í 1.800 eins og kemur fram í frumvarpinu. Árið áður voru þau 2.150 og var þar um fjölgun að ræða með 225 millj. kr. sérstöku framlagi í fjárlögum í launasjóð listamanna í ljósi veirufaraldursins. Eins og komið hefur fram hafa allar listgreinar orðið fyrir tjóni vegna faraldursins og verst hefur ástandið bitnað á tónlistarflytjendum og sviðslistafólki. Ég styð þetta aukna framlag sem lagt er hér til. Ég hjó sérstaklega eftir því að þarna er sérstaklega minnst á sviðslistarfólk og tónlistarflytjendur undir 35 ára aldri. Kannski missti ég af því í ræðu hæstv. ráðherra hvað liggur þar að baki en að sjálfsögðu er þarna sviðslistarfólk og tónlistarflytjendur sem eru eldri en 35 ára sem hafa líka orðið fyrir tjóni vegna veirufaraldursins.

Mér finnst tilefni til að rifja aðeins upp sögu listamannalauna en það eru starfslaun, eins og við vitum, sem listamenn geta sótt um árlega. Það fyrirkomulag sem við þekkjum hvað listamannalaun varðar er frá árinu 1991. Lögin sem stuðst er við í dag eru frá 2009. Úthlutun launa af hálfu hins opinbera til listamanna á sér þó mun lengri sögu og mun til að mynda hafa tíðkast alla 20. öldina. Ýmist var þá úthlutað beint af alþingismönnum eða aðilum sem þeir tilnefndu. Þetta fyrirkomulag var að sjálfsögðu umdeilt og voru lögin um starfslaun sem tóku gildi árið 1991 til mikilla bóta þar sem gengið var út frá hlutlægum vinnubrögðum, bæði við umsókn og úthlutun launanna.

Starfslaunin gera það að verkum að hverju sinni getur nokkur hópur manna og kvenna helgað sig list sinni sem er að sjálfsögðu mikilvægt. Það er fastur liður að listamannalaun komi til umræðu þegar þeim er úthlutað ár hvert. Oft er sú umræða því miður á neikvæðum nótum og sumir sjá ofsjónum yfir því að þessi og hinn listamaðurinn hafi fengið úthlutað listamannalaunum í nokkra mánuði og oftar en ekki er talað um hóp manna sem séu jafnvel áskrifendur að listamannalaunum eða starfslaunum. Umræðan um listamannalaun hefur haft tilhneigingu til að verða persónuleg enda er þeim í mörgum tilfellum úthlutað til þekktra einstaklinga og fólk hefur oft skoðanir á vinnuframlagi þeirra og gildi þess. Sumir tala jafnvel á þann veg að listamannalaun séu ölmusa. Þeir hinir sömu nota athugasemdakerfið á samfélagsmiðlunum óspart til að hnýta í þá sem fá listamannalaun. Oft og tíðum er umræðan um listamannalaun á þeim vettvangi óvægin eins og margt annað sem þar birtist. Þessi umræða hefur valdið því að sumir ágætir listamenn veigra sér við að sækja um listamannalaun, ekki síst fjölskyldu sinnar vegna og barna, og það er að sjálfsögðu miður. Auðvitað hefur það áhrif á fólk þegar ráðist er á það opinberlega fyrir það eitt að fá tímabundið listamannalaun.

Samkvæmt fjárlögum síðasta árs eru listamannalaun rúmar 400.000 kr. og launin eru verktakalaun sem síðan þarf að draga af lífeyrisgreiðslur, orlof og skatt. Ég held að það megi segja það, frú forseti, að erfitt sé að vera ungur listamaður sem er að byrja. Það eru ekki miklir tekjumöguleikar af t.d. bókaútgáfu, sérstaklega þegar um er að ræða höfunda sem eru að hasla sér völl. Íslenskur bókamarkaður er of smár til að halda uppi atvinnuhöfundum einum og sér. Höfum það hugfast að höfundur á borð við Halldór Laxness var lengst af á hæsta skáldastyrk af hálfu hins opinbera. Aðrir höfundar sem við stærum okkur af unnu verk sín með stuðningi af listamannalaunum; Davíð Stefánsson, Þórbergur Þórðarson, Jóhannes úr Kötlum, Steinn Steinarr og fleiri.

Gleymum því ekki að íslenskir höfundar skrifa fyrir eitt minnsta málsvæði í veröldinni, það er nú einu sinni þannig. Hlutverk þeirra er mjög mikilvægt fyrir íslenska tungu sérstaklega sem hefur átt undir högg að sækja eins og við þekkjum. Stór hluti af vinnu rithöfundar er sjálfboðavinna og starfs síns vegna er viðkomandi kannski kallaður í útvarp og sjónvarp, í grunnskóla, háskóla og á málþing. Oft og tíðum er þessi vinna nær án þóknunar. Hvað sviðslistirnar varðar er markaðurinn lítill og sýningar fáar. Ég held að óhætt sé að segja að listamenn séu upp til hópa lágtekjufólk. Það er hins vegar feimnismál hjá mörgum og eflaust ekki þægilegt þegar viðkomandi er sjálfur vörumerkið. Það er eflaust ekki heldur þægilegt að vera hafnað þegar kemur að listamannalaunum, neitað um úthlutun. Það getur síðan valdið því að viðkomandi hættir að skapa. Ég held að almennt séð sé fólk jákvætt gagnvart listamannalaunum og starfandi listamönnum. Ég held að þetta sé hávær minni hluti í athugasemdakerfi samfélagsmiðlanna en hann má að sjálfsögðu ekki stjórna umræðunni og ekki hafa neikvæð áhrif í þessum efnum.

Þeim fjármunum sem ríkissjóður ver í listamannalaun er skilað til baka með margvíslegum hætti. Við megum ekki gleyma því. Það myndast störf í kringum listirnar og greinin skilar virðisauka. Bækur eru seldar og sömuleiðis listmunir, við sækjum sýningar og tónleika, ferðamenn sækja landið gagngert heim vegna listamanna og sá hópur er stærri en menn grunar. Mikilvægt er að sýnileiki listamannalauna sé góður. Með auknum sýnileika sjóðsins eflist vitund almennings um mikilvægi listamannalauna. Það eru t.d. ekki allir sem vita það að sjóðurinn stendur einnig fyrir nýliðun. Að lágmarki 5% úthlutaðra mánaða hvers sjóðs er úthlutað til listamanna sem ekki hafa fengið úthlutað áður og það er að sjálfsögðu afar mikilvægt. Auk þess er lögð áhersla á að úthlutanir endurspegli alla þá flóru listsköpunar sem á sér stað á hverju sviði.

Þegar ég sat í fjárlaganefnd á síðasta kjörtímabili heyrði maður oft hugtakið landsframleiðsla nefnt, ekki síst þegar rætt var um skuldir ríkissjóðs en þá var gjarnan rætt um skuldir sem hlutfall af landsframleiðslu. Ýmsar atvinnugreinar leggja sitt af mörkum til landsframleiðslunnar; sjávarútvegurinn, ferðaþjónustan, iðnaðurinn, landbúnaðurinn o.s.frv. Þannig er alls kyns þjónusta nátengd atvinnugreinum eins og landbúnaði og sjávarútvegi og það sama á við um menningu og listir. Höfum það í huga að allar atvinnugreinar styðja hver aðra. Það væri fróðlegt að sjá tölur um það hver hlutur lista sé í landsframleiðslunni, þær tölur liggja að sjálfsögðu fyrir, en hann er mun meiri en menn halda.

Menning og listir eru mikilvæg atvinnugrein og umsvifamikill þáttur í hagkerfinu. Ekki má gleyma því að það eru verðmæti í því að koma menningu og listum á framfæri, sama í hvaða formi það er. En við getum ekki mælt allt í landsframleiðslu og peningum. Listir og menning hafa jákvæð áhrif í samfélaginu sem mælast ekki í hagvexti en það er aukin vellíðan einstaklinga. Listin og tilfinningar sem hún vekur hefur meira að segja verið notuð sem aðferð í því skyni að auka vellíðan alzheimersjúklinga. Um þetta hefur verið skrifuð bók sem heitir Listir og menning sem meðferð – íslensk söfn og Alzheimer. Þetta er athyglisverð bók sem ég vil hvetja þingmenn til að kynna sér.

Bein framlög eins og listamannalaun eru ekki eina leiðin til að styðja við greinina. Skattaívilnanir geta að sjálfsögðu verið jákvæðar í þessum efnum og hugsa mætti sem svo að fyrirtækjum sem verja fé til lista og menningar væri heimilt að draga það frá tekjum með tilteknu álagi. Þessu er varpað hér fram. Þetta hefur m.a. verið lagt til á vettvangi menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna, UNESCO.

Ég segi það hér að lokum, frú forseti, að það ætti að vera sameiginlegt verkefni okkar allra á Alþingi að styðja við leiðir til að auka umsvif lista og menningar í hagkerfinu.