Bráðabirgðaútgáfa.

152. löggjafarþing — 68. fundur,  25. apr. 2022.

sala hlutabréfa ríkisins í Íslandsbanka, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.

[23:57]
Horfa

Ágúst Bjarni Garðarsson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Ég held að það sé alveg skýrt í þessu að Ríkisendurskoðun er algerlega óháð öllu í sínum störfum þó að hún sé ein af stofnunum á vettvangi þingsins. Ég bara ítreka það að ég treysti Ríkisendurskoðun fullkomlega. (Gripið fram í.) — Það má hlæja að því hér úti í sal. En það er einfaldlega þannig að ég treysti henni, kannski ólíkt öðrum þingmönnum sem hér sitja.