152. löggjafarþing — 69. fundur,  26. apr. 2022.

hollustuhættir og mengunarvarnir o.fl.

457. mál
[20:49]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég ætla hins vegar að leyfa mér, vegna þessarar umræðu, að endurtaka það sem ég hef sagt áður, með leyfi forseta:

„Í frumvarpinu er skýrt tekið fram að heimildir til bráðabirgða verði aðeins veittar að því tilskildu að gerðar verði allar lagfæringar á umhverfismati sem nauðsynlegar eru til að umhverfismatið uppfylli kröfur samkvæmt lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Endurskoðað umhverfismat skal ná til upphafs framkvæmdar. Þá verði heimildir til bráðabirgða einungis veittar í sérstökum undantekningartilvikum, svo sem til að koma í veg fyrir sóun á verðmætum eða slys eða ef um er að ræða framkvæmd í þágu almannahagsmuna og brýn þörf er á skjótri afgreiðslu. Gert er ráð fyrir aðkomu almennings að ákvörðunarferlinu auk þess sem ákvörðunarvald um veitingu heimildar til bráðabirgðaráðstafana færist frá ráðherra til viðkomandi stofnunar, þ.e. Umhverfisstofnunar og Matvælastofnunar, og sætir þar með kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.“

Ég vona, virðulegi forseti, að þetta skýri málið, en ég get að sjálfsögðu farið með þetta hér einu sinni enn.