152. löggjafarþing — 69. fundur,  26. apr. 2022.

niðurgreiðsla húshitunarkostnaðar.

582. mál
[22:33]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og vona að þetta verði skoðað vel í hv. nefnd og þess einmitt gætt að þrengja ekki að þeim valkostum og þeirri þróun sem er að eiga sér stað því að það skiptir okkur svo miklu máli að leitað sé bestu og hagkvæmustu lausna. Ef ég skil rétt virkni þessarar lausnar sem ég nefndi sérstaklega austur á fjörðum þá er, talandi um hringrásarhagkerfið, alveg sérstakur árangur að nást með þessum efnivið sem annars þarfnaðist förgunar; útslitin vörubretti sem ekki færu í notkun aftur. Ég er ekki með frekari spurningar til hæstv. ráðherra en þakka fyrir svarið og hvet hv. nefnd til þess að nálgast þetta með víðari skilningi en þrengri þegar þar að kemur.