152. löggjafarþing — 70. fundur,  27. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[16:09]
Horfa

Erna Bjarnadóttir (M):

Forseti. Ég vil leyfa mér að rifja upp hvort ekki sé hægt að bera klæði á vopnin í þessari umræðu. Hv. þm. Bergþór Ólafsson lagði til í umræðum í gær eða fyrradag að forseti kannaði fordæmi sem væri til um sambærilega rannsókn sem ekki hefði farið í gegnum þingið, ef ég man rétt. Þannig að ég beini því til forseta hvort þetta hafi verið skoðað með þeim hætti sem hv. þingmaður lagði til.