152. löggjafarþing — 70. fundur,  27. apr. 2022.

ákvörðun nr. 383/2021 um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn.

411. mál
[16:42]
Horfa

Frsm. utanrmn. (Logi Einarsson) (Sf):

Herra forseti. Ég mæli fyrir hönd utanríkismálanefndar fyrir nefndaráliti um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 383/2021 um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn.

Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 383/2021 frá 10. desember 2021 um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn og fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/878 að því er varðar aðila sem njóta undanþágu, eignarhaldsfélög á fjármálasviði, blönduð eignarhaldsfélög í fjármálastarfsemi, starfskjör, eftirlitsráðstafanir og -heimildir og ráðstafanir til að varðveita eigið fé.

Nefndin fjallaði um málið og fékk gesti á sinn fund, eins og fram kemur í nefndaráliti sem liggur frammi. Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 7. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála. Að því sögðu leggur utanríkismálanefnd til að þingsályktunartillagan verði samþykkt.

Undir nefndarálitið rita, auk þess sem hér stendur, hv. þingmenn Bjarni Jónsson formaður, Birgir Þórarinsson, Diljá Mist Einarsdóttir, Jakob Frímann Magnússon, Jóhann Friðrik Friðriksson, Njáll Trausti Friðbertsson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. Gísli Rafn Ólafsson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykkur álitinu.