152. löggjafarþing — 75. fundur, 16. maí 2022.
útlendingar.
595. mál
Frú forseti. Hér er kallað eftir hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra, sem er jú reyndar ekki ráðherrann sem fer með málið, ráðherrann sem fer með málið situr hér í salnum og er hér til svara og tekur þátt í þessari umræðu og eftir því er gjarnan kallað. En hann er jú akkúrat hér og ég sé enga ástæðu til þess að annar ráðherra sé að mæta hér í hús þegar hæstv. dómsmálaráðherra situr í salnum.