152. löggjafarþing — 76. fundur,  17. maí 2022.

leigubifreiðaakstur.

470. mál
[15:16]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir áhugaverða yfirferð um leigubílamarkað heimsins — er það ekki ágæt lýsing? En það var kannski þarna í lokin sem tillagan kom fram. Ég ætla að fá að koma með krók á móti bragði og segja, af því að nú stöndum við frammi fyrir því að afsláttur af rafmagnsbílum er að falla niður, sú tíð er að taka enda: Ég myndi frekar vilja sjá, ef eitthvað, að við framlengdum afsláttinn við kaup á rafmagnsbílum ef um leigubíl er að ræða. Það hefði sömu áhrif en töluvert betri umhverfisáhrif.