Bráðabirgðaútgáfa.

152. löggjafarþing — 80. fundur,  24. maí 2022.

ákvörðun nr. 76/2022 um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn.

501. mál
[20:14]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Herra forseti. Ég mæli fyrir hönd utanríkismálanefndar fyrir nefndaráliti um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 76/2022 um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn.

Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar og fella inn í samninginn annars vegar reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2160 að því er varðar áhættuskuldbindingar í formi sértryggðra skuldabréfa og hins vegar tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2162 um útgáfu sértryggðra skuldabréfa og opinbert eftirlit með sértryggðum skuldabréfum.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti eins og kemur fram í nefndaráliti sem liggur frammi.

Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 7. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála.

Að framansögðu virtu leggur utanríkismálanefnd til að þingsályktunartillagan verði samþykkt.

Undir álitið skrifa hv. þingmenn Bjarni Jónsson, Þorgerður K. Gunnarsdóttir, Birgir Þórarinsson, Diljá Mist Einarsdóttir, Jakob Frímann Magnússon, Jóhann Friðrik Friðriksson, Logi Einarsson og sá sem hér stendur, Njáll Trausti Friðbertsson. Gísli Rafn Ólafsson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykkur áliti þessu.