Bráðabirgðaútgáfa.

152. löggjafarþing — 82. fundur,  31. maí 2022.

stéttarfélög og vinnudeilur.

272. mál
[22:01]
Horfa

Helga Þórðardóttir (Flf) (andsvar):

Ég þakka hv. þm. Hafdísi Hrönn Hafsteinsdóttur fyrir svarið. Ég var með aðra spurningu. Það er að fá skýringu á því af hverju þessir þrír dómarar eru skipaðir ótímabundið. Ég sé að það hefur verið svolítil gagnrýni á það. Hinir tveir dómararnir eru skipaðir til þriggja ára. Eru einhverjar röksemdir fyrir því? Ég sé að það hefur einhver umræða verið um það. Ég skildi ekki alveg hvers vegna þetta er eða fékk ekki næga skýringu á því.