Bráðabirgðaútgáfa.

152. löggjafarþing — 84. fundur,  2. júní 2022.

virðisaukaskattur.

679. mál
[15:54]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Mér líst í fljótu bragði ekki illa á þetta frumvarp. Ég held að það að gefa afslátt fyrir bifreiðar sem eru notaðar í þágu björgunarsveita sé mjög gott mál og ég held að það sé enn þá tilefni til að vera með slíkar ívilnandi aðgerðir, eins og aðrar greinar frumvarpsins boða. Síðan eru það bifreiðagjöldin og hvernig við fjármögnum viðhald og uppbyggingu á vegakerfinu. Það finnst mér vera önnur umræða. Mér finnst þetta sem við erum að tala um hér vera mjög mikilvægur liður í orkuskiptum í samgöngum. En það sem skiptir auðvitað máli þegar á heildina er litið er að grænu umskiptin verði réttlát. Þegar kemur að breyttri gjaldtöku þarf að horfa til þess, og það þarf að horfa til þess í fleiri þáttum, vegna þess að réttlát umskipti í átt að kolefnishlutlausri framtíð er eitt brýnasta umhverfis-, samfélags- og efnahagsmál samtímans. Með grænum umskiptum þarf að tryggja að aðgerðir í baráttunni gegn loftslagsbreytingum ýti ekki undir aukinn ójöfnuð í samfélaginu. Að því þarf að huga þegar við annaðhvort fellum niður gjöld eða setjum á önnur, að þau séu til þess fallin að vinna gegn loftslagsbreytingum af mannavöldum og vinna gegn ójöfnuði í samfélaginu líka. Það þarf að samræma allar aðgerðir sem þarna eru undir með það að markmiði að tryggja mannsæmandi störf og lífskjör. Þjóðir heims höfðu sameinast um að árið 2020 ætti að einkennast af loftslagsaðgerðum á alþjóðavísu en málefnið féll síðan í skuggann af heimsfaraldri kórónuveiru og áhrifum hans. Þó að langþráður árangur sé að nást við að hemja heimsfaraldurinn er hamfarahlýnunin því miður ekki á undanhaldi og því er nauðsynlegt að setja fram metnaðarfull markmið og áætlanir til að sýna vilja Íslands til að axla ábyrgð í loftslagsmálum og víkja hvergi undan ábyrgð í þessu stærsta viðfangsefni mannkyns. Íslensk stjórnvöld verða að sýna metnaðarfyllri útfærslu á áformum sínum um kolefnishlutleysi árið 2040 til að uppfylla skuldbindingar Parísarsamkomulagsins, standa við enn óljós markmið með Noregi og ESB um 55% samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda og standa við sameiginlega Helsingfors-yfirlýsingu forsætis- og umhverfisráðherra Norðurlanda um að norræn ríki ætli sér að leiða baráttu gegn loftslagsbreytingum.

Ég nefni þetta hér forseti, vegna þess að við þurfum í öllum okkar skrefum að minna okkur á ógnina sem er af því að gera ekki neitt til að vinna gegn loftslagsvánni og þetta frumvarp er að mínu áliti skref í græna átt. Þó að það sé lítið þá skiptir það samt sem áður máli.

Í skýrslu milliríkjanefndar Sameinuðu þjóðanna kemur fram hvað þær sviðsmyndir sem stuðla að 1,5°C eða 2°C hlýnun krefjast mikilla fjárfestinga. Sviðsmynd OECD fyrir 2°C hnattræna hlýnun er eina sviðsmyndin sem tekur tillit til fjárfestinga í samgönguinnviðum og öðrum innviðum, auk fjárfestinga í orkuvinnslu og orkunýtni. Það er áætlað að árlegar fjárfestingar þurfi að nema því sem samsvarar 6% af landsframleiðslu heimsins, annars vegar 4% vegna samgönguinnviða og annarra innviða og hins vegar 2% vegna orkuvinnslu og orkunýtni. Þar sem endurnýjanleg orkuvinnsla hefur verið tekin upp hér á landi standa eftir fjárfestingar vegna samgönguinnviða og annarra innviða sem þurfa samkvæmt þessu að vera 4% af vergri landsframleiðslu til að mæta alþjóðlegum kröfum. 4% af vergri landsframleiðslu miðast þó við 2°C hlýnun og það er ljóst að miða þarf við hærri prósentu af vergri landsframleiðslu til að ná 1,5°C markmiðinu sem Ísland og önnur ríki hafi lýst yfir vilja til að ná. Stjórnvöld bera ábyrgð á þessari fjármögnun ásamt atvinnulífinu og ljóst er að betur má ef duga skal í útgjöldum til málaflokksins. Þar þurfa framlög íslenska ríkisins að duga fyrir metnaðarfyllri markmiðum en núverandi stjórnvöld setja sér. Einnig þarf að draga úr fjárframlögum til aðgerða sem stuðla að aukningu losunar og nýta fjárhagslegar ívilnanir og skattkerfið með mun markvissari hætti en nú er gert í þágu loftslagsmála.

Við í Samfylkingunni viljum sjá mun meiri metnað íslenskra stjórnvalda í loftslagsmálum en þau sýna t.d. í fyrirliggjandi fjármálaáætlun sem við fáum vonandi að ræða hér í næstu viku. Fjárlög og fjármálaáætlanir þurfa að endurspegla vilja Íslands til að standa við skuldbindingar sínar á alþjóðavettvangi og verða að sýna skýrari merki en nú um metnað stjórnvalda í loftslagsmálum. Það er einnig ljóst að markaðsöflin munu ekki leysa loftslagsvandann upp á eigin spýtur. Þetta gildir jafnt um aðgerðir til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og mótvægisaðgerðir. Til þess að hægt sé að draga með markvissum hætti úr losun gróðurhúsalofttegunda með grænni uppbyggingu þarf hið opinbera að taka frumkvæði og vísa veginn og á það við um orkuskiptin. Það þarf hærri og markvissari niðurgreiðslur rafmagnsbifreiða. Við erum að tala um að fleiri bílar séu undir í þessu frumvarpi sem er hér á dagskrá, auk fjárfestingar í almenningssamgöngum, fjárfestingar í hringrásarhagkerfinu og í matvælaframleiðslu, að efla græna stjórnsýslu og innleiða græna fjárfestingaráætlun. Engin samfélagssátt næst um hröð orkuskipti og aðrar breytingar á atvinnu- og lifnaðarháttum nema velferðarsjónarmið séu höfð að leiðarljósi og tryggt að kostnaður falli ekki á herðar tekjulægri hópa eða íbúa í dreifðum byggðum umfram aðra.

Samkvæmt rannsókn sem unnin var af hópi hagfræðinga fyrir Smith School of Enterprice and the Environment við Oxford-háskóla í maí 2020, sem byggðist á viðtölum við á þriðja hundrað sérfræðinga og stjórnenda í fjármálaráðuneytum og seðlabönkum víða um heim, eru fjárfestingar í grænni nýsköpun, þróun og uppbygging innviða og flutnings- og dreifikerfa fyrir endurnýjanlega orku, á meðal þeirra efnahagslegu örvunaraðgerða sem hafa mikil margfeldisáhrif og eru þannig ákjósanlegar á krepputímum.

Markmið um sjálfbærni og kolefnishlutleysi falla því vel að markmiðum um aukin lífsgæði og fjölgun starfa. Það er því mikilvægt að koma á fót öflugum grænum fjárfestingarsjóði og auka til muna fjárframlög til almenningssamgangna og grænnar nýsköpunar. Þá má nýta fjölda lausna og gagna sem til eru nú þegar, til þess að stuðla að varðveislu líffræðilegrar fjölbreytni og stemma stigu við loftslagsvánni. Líffræðilegur fjölbreytileiki hafsins skiptir okkur hér á landi miklu máli og verði þróunin þar ekki stöðvuð mun hún hafa slæm áhrif á fiskimið okkar og stórkostleg efnahagsleg áhrif um leið. Evrópusambandið hefur sett á laggirnar sérstakt kerfi í því skyni að tryggja að umskipti í átt að loftslagshlutlausu hagkerfi verði réttlát og skilji engan eftir. Það er hluti af græna samfélagssáttmálanum The European Green Deal. Kerfið tekur á þeim félagslegu og efnahagslegu áhrifum sem umskiptin hafa í för með sér, með markvissum stuðningi og sérstakri áherslu á svæði, atvinnugreinar og launafólk sem munu standa frammi fyrir stærstu áskorununum.

Við jafnaðarmenn viljum tryggja að grænu umskiptin verði sanngjörn og allir fái að vera með. Jafnaðarmenn í Norðurlandaráði hafa lagt ríka áherslu á réttlát græn umskipti og norrænt samstarf um það réttlætismál er heilmikið og er að aukast. Á endanum verða allir að leggja sitt af mörkum í baráttunni gegn loftslagsbreytingunum en tryggja verður að kostnaður af grænum umskiptum lendi ekki þyngst á þeim sem minnst hafa á milli handanna. Raunar gætu grænu umskiptin leitt af sér sanngjarnari skiptingu gæða en þekkist nú. Komi hins vegar til þess að fólk upplifi vaxandi ójöfnuð eða þurfi að taka á sig óhóflegar byrðar í baráttunni við loftslagsbreytingar mun það veikja stuðning við afleiðingar til langrar framtíðar. Það yrði einnig til þess að árangur næðist ekki í því að vinna gegn ógninni sem loftslagsvá af mannavöldum er. Ef grænu umskiptin í átt að kolefnishlutlausu samfélagi eru ekki nægilega vel skipulögð gætu ákveðin svæði, atvinnugreinar eða launafólk sem nú treystir á kolefnisfrekt hagkerfi og aðstöðu þurft að taka á sig stóran efnahagslegan og félagslegan toll vegna nauðsynlegra aðgerða í þágu umskiptanna. Tæknibyltingin opnar á fjölmörg tækifæri í grænu umskiptunum. Sama gildir þó um hana og grænu umskiptin, því að koma þarf í veg fyrir að tæknibyltingin auki ójöfnuð, hún þarf þvert á móti að auka jöfnuð.

Grænu umskiptin munu eflaust leiða til breytinga á vinnumarkaði og tegundum starfa. Ný störf koma fram, önnur breytast og enn önnur gætu horfið. Það þarf að finna leiðir til að koma í veg fyrir atvinnuleysi vegna umskiptanna og að þau sem hafa minnst milli handanna nú verði ekki fyrir slæmum áhrifum af þessari umbyltingu. Bestu lausnirnar fást með samvinnu og því þarf að tryggja að allir séu með í samtalinu um réttlát græn umskipti. Markmiðið er að réttlát græn umskipti styrki velferðarkerfið og ábyrga efnahagsstjórn. Þau stuðli að skipulögðum og heilbrigðum vinnumarkaði. Þess vegna þarf pólitíska forystu og sameiginlegt átak verkalýðshreyfinga, sveitarfélaga, atvinnulífs og stjórnvalda til að tryggja að umskiptin verði réttlát. Það er einmitt þess vegna sem við í Samfylkingunni höfum lagt fram þingsályktunartillögu, sem þó hefur ekki komist á dagskrá þingsins, en er svohljóðandi, með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að gera tímasetta og fjármagnaða aðgerðaáætlun til að tryggja réttlát græn umskipti og leggja fyrir Alþingi eigi síðar en 1. apríl 2023. Við gerð aðgerðaáætlunarinnar verði kallað eftir samráði við verkalýðsfélög, sveitarfélög og atvinnurekendur. Markmið áætlunarinnar verði að koma í veg fyrir það ójafnrétti sem hlotist getur af loftslagsvá og tryggja að grænu umskiptin ýti undir aukinn jöfnuð í samfélaginu ásamt því að fjárlög og fjármálaáætlanir endurspegli vilja Íslands til að standa við skuldbindingar sínar á alþjóðavettvangi í loftslagsmálum.“

Herra forseti. Ég vildi draga þetta fram hér. Þó að þetta frumvarp hér sé kannski ekkert risaskref í orkuskiptum í samgöngum, þá skiptir það vissulega máli. Við höfum verið með ívilnanir að þessu leyti fyrir rafmagnsbíla allt frá árinu — ja, ég man eftir þessu í minni tíð í fjármálaráðuneytinu frá árinu 2012. Um þetta var fjallað í fjárlögum fyrir árið 2013 og allar götur síðan höfum við verið með þessar ívilnanir og ég tel mikilvægt að við höldum þeim áfram og fjölgum bílunum. Einnig tel ég það skynsamlegt að taka af aldursviðmiðið úr endursölunni og fyrir utan þetta auðvitað, að hlúa að björgunarsveitum með því að hjálpa til við að fjármagna umskipti á þeim bílum sem notaðir eru við björgunarstörf.

Forseti. Við þyrftum að tala meira um grænu umskiptin og afleiðingar þeirra. Það eru alls konar viðmið og staðlar sem verið er að vinna að í útlöndum sem við munum þurfa að taka upp hér í stjórnsýslunni m.a. og við framkvæmdir sem við þurfum að uppfylla og standa skil á. Mér finnst við ekki tala nógu mikið um þetta. Við áttum okkur ekki nægilega vel á því hvar kostnaðurinn lendir, hvaða störf munu breytast og hverjir þurfa helst að bera kostnaðinn. Þarna verðum við, eins og ég hef ítrekað sagt í ræðu minni, að gæta þess að grænu umskiptin verði réttlátt og þau sem hafa minnst handa á milli þurfi ekki að bera mestan kostnaðinn.