Bráðabirgðaútgáfa.

152. löggjafarþing — 85. fundur,  7. júní 2022.

staðfesting kosningar.

[13:48]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, Orra Páli Jóhannssyni, um að Guðmundur Ingi Guðbrandsson, 4. þm. Suðvest., geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Því tekur í dag sæti á Alþingi 2. varamaður á lista flokksins í kjördæminu, Ólafur Þór Gunnarsson, en 1. varamaður á lista hefur boðað forföll.

Að ósk forseta hefur landskjörstjórn gefið út tilkynningu á grundvelli 1. mgr. 113. gr. kosningalaga til Ólafs Þórs Gunnarssonar. Jafnframt hefur stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fundað til þess að fjalla um kosningu og kjörgengi hans.