Bráðabirgðaútgáfa.

152. löggjafarþing — 88. fundur,  9. júní 2022.

framfylgd ályktana Vestnorræna ráðsins árið 2021.

643. mál
[23:55]
Horfa

Frsm. ÍVN (Birgir Þórarinsson) (S):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti um tillögu til þingsályktunar um framfylgd ályktana Vestnorræna ráðsins árið 2021. Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Steinunni Þóru Árnadóttur, formann Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins, og Bylgju Árnadóttur, ritara Íslandsdeildar.

Með tillögunni er skorað á ríkisstjórnina að vinna að framkvæmd tveggja ályktana Vestnorræna ráðsins sem samþykktar voru á ársfundi ráðsins 1. september á síðasta ári, um aukið vestnorrænt samstarf á vettvangi umhverfis- og loftslagsmála, nr. 1/2021, og um samstarf vestnorrænna háskóla um fjarkennslu, nr. 2/2021.

Í ályktun Vestnorræna ráðsins nr. 1/2021 kallar ráðið eftir því að umhverfisráðherrar landanna þriggja geri með sér samstarfssamning þar sem m.a. verði kveðið á um árlegan samráðsfund ráðherranna. Á þeim fundum gæfist tækifæri til að auka vestnorrænt samstarf og deila reynslu og lausnum í umhverfis- og loftslagsmálum.

Í ályktun Vestnorræna ráðsins nr. 2/2021 hvetja menntamálaráðherrar Íslands, Grænlands og Færeyja til aukins samstarfs landanna þriggja um háskólamenntun með hjálp fjarkennslu. Tækniþróun, bætt fjarskipti og aukin reynsla af fjarkennslu hefur undanfarin ár gjörbreytt möguleikum íbúa strjálbýlla svæða til að sækja sér fjölbreytta háskólamenntun. Fjarnám getur haft jákvæð áhrif á þroska einstaklinga, búsetu í heimabyggð og þannig á heilbrigði samfélaga á norðurslóðum. Með það í huga er hvatt til þess að menntamálaráðherrar landanna þriggja skoði möguleika á að innleiða fjarnám í samstarfi háskóla í löndunum þremur.

Nefndin leggur til að þessi tillaga verði samþykkt.

Gísli Rafn Ólafsson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykkur áliti þessu og undir álitið rita: Bjarni Jónsson formaður, Birgir Þórarinsson framsögumaður og hv. þingmenn Diljá Mist Einarsdóttir, Hanna Katrín Friðriksson, Jakob Frímann Magnússon, Jóhann Friðrik Friðriksson, Logi Einarsson, Njáll Trausti Friðbertsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.